Privacy policy

Persónuverndarstefna 

Gildir frá: 26. ágúst 2025

Við hjá North Port ehf. leggjum mikla áherslu á öryggi og gagnsæi í allri meðferð persónuupplýsinga. Í þessari persónuverndarstefnu útskýrum við hvaða upplýsingar við söfnum, í hvaða tilgangi, hversu lengi þær eru varðveittar, hvernig þær eru deildar og hvaða réttindi þú hefur samkvæmt persónuverndarlöggjöf.

Við söfnum einkum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að afgreiða pantanir og veita góða þjónustu, svo sem nafni, heimilisfangi, símanúmeri, netfangi, pöntunarsögu og afhendingarupplýsingum. Við vistum ekki fullar greiðsluupplýsingar heldur fara greiðslur í gegnum örugga greiðslugátt hjá viðurkenndum þjónustuaðila sem sérhæfir sig í greiðslum og við móttekur staðfestingu þess efnis. Við söfnum einnig upplýsingum sem tengjast samskiptum við viðskiptavini, svo sem fyrirspurnum eða kvörtunum, og í sumum tilvikum tæknilegum upplýsingum sem verða til við notkun vefsins, þar á meðal vafrakökum.

Tilgangurinn með söfnun og vinnslu þessara gagna er fyrst og fremst að geta afgreitt pantanir, staðið við samninga og tryggt örugga og rétta afhendingu vara. Við vinnum einnig gögn til að uppfylla lagaskyldur, svo sem varðandi bókhald, og til að verja lögmæta hagsmuni okkar, meðal annars með því að bæta þjónustu og koma í veg fyrir svik eða villur. Í ákveðnum tilvikum, svo sem þegar kemur að markaðssamskiptum eða notkun vafrakakna, byggjum við vinnslu á samþykki viðskiptavinar sem hann getur afturkallað hvenær sem er.

Upplýsingum er aðeins deilt með þriðju aðilum að því marki sem nauðsynlegt er til að veita þjónustu. Þetta geta verið flutningsaðilar, svo sem Dropp eða Pósturinn, þegar afhending er valin, og greiðsluþjónustur sem taka við greiðslum. Að auki má nefna þjónustuaðila sem sjá um vefhýsingu, póstsendingar eða kerfisviðhald. Við deilum aldrei upplýsingum í hagnaðarskyni eða seljum þær til annarra. Ef skylt er samkvæmt lögum getum við þó þurft að miðla upplýsingum til yfirvalda.

Varðandi varðveislutíma þá eru bókhaldsgögn og reikningsupplýsingar varðveitt í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs, í samræmi við íslensk lög. Þjónustugögn og samskipti eru varðveitt svo lengi sem nauðsyn krefur til að leysa mál og verja hagsmuni okkar, en eytt þegar þau eru ekki lengur þörf. Gögn sem byggja á samþykki, svo sem vegna markaðssamskipta, eru varðveitt þar til samþykki er afturkallað. Vafrakökugögn eru varðveitt samkvæmt stillingum notanda og líftíma kökunnar.

Öryggi gagna er okkur mikilvægt og við beitum bæði tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að tryggja vernd þeirra, svo sem dulkóðun, aðgangsstýringum og reglulegu öryggiseftirliti. Aðgangur að upplýsingum er takmarkaður við starfsmenn og þjónustuaðila sem þurfa á þeim að halda. Ef gögn eru flutt út fyrir Evrópska efnahagssvæðið tryggjum við viðeigandi vernd, meðal annars með samningsákvæðum samkvæmt reglum Evrópusambandsins.

Þú átt ávallt rétt á að fá aðgang að eigin gögnum, óska eftir leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu, andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og biðja um flutning gagna. Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki fyrir markaðssamskiptum eða notkun vafrakaka. Beiðnir um nýtingu réttinda er hægt að senda á netfangið northport@northport.is eða með pósti á heimilisfang North Port ehf. Við svörum slíkum beiðnum innan 30 daga.

Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga hjá okkur brjóti gegn lögum hefur þú rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, netfang postur@dpa.is, sími 510 9600.

Stefnan getur tekið breytingum í samræmi við lagaskyldur eða breytingar á starfsemi fyrirtækisins. Ný útgáfa er þá birt á vefsíðu okkar með uppfærðum gildisdegi.