Uppbygging Hearth? Yerba Mate🧉
Yerba Mate er helsti parturinn af Hearth! Þeir sem drekka Yerba Mate á hinn hefðbundna hátt 🧉 geta vitnað í að það er mjög tímafrekt og þarf marga hluti með sér í það. Mate er frábær orkugjafi og þess vegna fundum við lausn á að koma þessum töfrum í dós, fyrir léttara aðgengi.
Til að drekka Yerba Mate á hinn hefðbundna hátt þarf maður bolla 🧉 (gourd), filtersrör (bombilla) og gott er að hafa hitabrúsa (thermos) til að halda heita vatninu. Svo eru misjafnlega flóknar aðferðir hvernig Mate bolli er preppaður og fer það eftir hvernig mate þú ætlar að drekka. Hægt er að fá Mate í mörgum gerðum, það er mismunandi hversu fíngert plantan er brotin niður, allt að stilkum eða dufti.
Hvað er í Yerba Mate 🧉
Yerba Mate er Suður-Amerísk jurt sem gefur hreina og stöðuga orku. Yerba Mate inniheldur fullt af vítamínum, steinefnum, amínósýrum og andoxunarefnum. Einnig eru tvö náttúruleg efni í Yerba Mate sem vinna saman að stöðugleika í orkustigi.
Kostir við Yerba Mate 🧉
- Vítamín: A, B, B1, B2 og C
- Steinefni: járn, magnesíum, kalíum
- 15 mismunandi amínósýrur
- Náttúrulegt koffín
- Teófyllín og teóbrómín
- Stöðugleiki í orkustigi
Yerba Mate gerir ÞÉR kleift að auka fókus, ná orkustiginu upp, en samt halda þér rólegum líkamlega á sama tíma. Það gefur þér þannig "mental clarity".
Heimsmeistari með Argentínu vitnar í Yerba Mate 🧉
"Í Argentínu er Yerba Mate meira en bara drykkur; það er lífsstíll. Það er líka besta og hollasta form koffíns."
– Heimsmeistari með Argentínu í knattspyrnu árið 2022.
Þess vegna vildum við gera það aðgengilegra fyrir fólk til að leyfa fleirum að kynnast þessu. Við settum það í dós og bjuggum til þrjár ljúffengar bragðtegundir með náttúrulegum innihaldsefnum og án viðbætts sykurs.
Uppruni Yerba Mate 🧉
Ásamt öllum heilsukostum sem Yerba Mate býður upp á, býður það einnig upp á sögu til margra alda. Á 16. öld ferðuðust evrópskir landkönnuðir til frumskóga Suður-Ameríku í leit að gulli. Í staðinn fundu þeir sterkan, heilbrigðan og gestrisinn ættbálk: Guarani-þjóðflokkinn. Evrópumenn reyndu að uppgötva leyndarmál þessarar góðu heilsu og lærðu af frumbyggjunum að hún væri rakin til drykkjar Yerba Mate, sem landkönnuðirnir lýstu sem "græna gullinu frá Indíánum".